Um Mínar síður

Skrá sig inn á Mínar síður

Mínar síður er vefþjónusta fyrir farþega Pant og aðstandendur. Vefþjónustan veitir greiðan aðgang að upplýsingum um bókaðar ferðir og gerir þeim mögulegt að afbóka ferðir með klukkustundar fyrirvara.

Hægt er að opna vefþjónustuna í flestum tölvum og farsímum en nettenging þarf að vera til staðar. Til að sækja um aðgang að vefþjónustunni þarf að fylla út umsóknina hér.

Innskráning
Þegar farið er á slóðina Mínar síður efst á síðunni opnast innskráningarsíðan.  Þar skráir notandi sig inn með tölvupóstfangi, lykilorði og smellir svo á Log on.

Skoða bókaðar ferðir
Þegar búið er að skrá sig inn birtast upplýsingar um ferðir dagsins og einnig er hægt að smella á Ferðir síðar til að skoða bókaðar ferðir næstu daga. Allar ferðir sem koma fram á yfirlitinu eru annað hvort með stöðuna Pöntuð eða Afpöntuð.

Afpanta ferðir
Í vefþjónustunni er hægt að afpanta ferðir með klukkustundar fyrirvara. Það er gert með því að smella á græna hnappinn Pöntuð en þá opnast viðvörunargluggi þar sem aðgerðin er endanlega samþykkt og ferðin er afpöntuð.

Hvar er bíllinn?
Hægt er að smella á ferð til að fá nánari upplýsingar um ferðina. Þar koma fram tímasetningar, brottfararstaður, áfangastaður ásamt götukorti. Mögulegt er að sjá hvar bíllinn er staddur 30 mínútum áður en hann kemur að sækja farþegann. Þar sem ekki er aðgengi að GPS ferlum leigubifreiða  er ekki hægt að sjá ferðir þeirra á korti og um leið og ferð er úthlutuð á leigubifreið merkist ferðin sem lokið.