Strætóþjálfun

Strætóþjálfun er fyrir fólk sem er að nýta sér Pant akstursþjónustu og vill prófa að taka strætó.

Strætóþjálfi kemur til fólks og er innan handar fyrir fólk sem vill læra á strætó. Allir þeir sem nýta sér þjónustuna fá fylgd alla leið, Strætóþjálfinn kemur til þeirra, fer með þeim í strætó og fylgir þeim svo á leiðarenda.

Það sem hafa þarf í huga:

  • Panta þarf ferð með dags fyrirvara.
  • Fólk þarf að hafa strætókort eða miða fyrir ferðinni með sér.
  • Ef fólk er með örorkumiða þarf það að hafa örorkuskírteini með sér.
  • Fólk þarf að vera tilbúið að leggja af stað þegar Strætóþjálfinn kemur.
  • Taka þarf fram við pöntun nauðsynlegar upplýsingar.

Þjónustan er í boði frá kl. 9:00 til kl. 17:00 alla virka daga.

Allar pantanir á að senda á pant@pant.is