Utan opnunartíma þjónustuversins er eingöngu hægt að panta stakar ferðir, afpanta ferðir og fá svör við brýnum erindum.
Ath: Ekki er tekið við föstum ferðapöntunum eða hópaferðum í síma utan opnunartíma.
Ef ferð á að hefjast fyrir kl. 9:30 að morgni, þá þarf pöntun að hafa borist í síðasta lagi fyrir kl. 21:30 kvöldið áður.
Ef ferð er afpöntuð með styttri fyrirvara en tveimur klukkustundum þá telst ferðin með í uppgjöri.
Á pöntunarsíðunni er hægt að panta með 2 tíma fyrirvara á opnunartíma þjónustuversins en utan opnunartíma er fyrirvarinn 4 tímar.
Hærra gjald er tekið fyrir ferðapantanir sem eru samdægurs eða utan opnunartíma þjónustuversins.
Sími þjónustuversins er 540 2727
Öruggast er að panta ferðir með að skrá sig inn á pöntunarsíðuna. Panta ferð