- Notendur Pant akstursþjónustu sem eru í framhaldsnámi (framhalds- eða háskóla) hafa rétt til að kaupa ungmenna- eða nemakort sem er áskriftarkort og gildir í eitt ár frá kaupdegi.
- Til að fá kort þarf notandi að sækja um heimild til þjónustumiðstöðvar þess sveitafélags sem notandi hefur lögheimili í.
- Þjónustumiðstöð sendir heimildina til Pant sem skráir notanda. Ef notandi óskar eftir því er möguleiki að útbúa kort með mynd sem gildir líka í Strætó.
- Verð á nemakortum er 46.500 krónur.
- Nemakort sem eru fyrir notendur Pant eru ekki seld í gegnum vefssíðu Strætó.